9.8.02

Halló hér, var að koma í gær frá Eyjum. Við höfðum það gott í góða veðrinu sem lét sjá sig loks þegar fjöldinn var farinn. Tókum golf og reyndum að spranga, spiluðum kan kan og fórum í hengimann. Algjör afslöppun og skemmtilegheit. Sammi félagi er með fyrirtæki 1001 nótt og fundaði ég með honum í dag á Priki og tékkaði svo á húsakynnum fyrirtækisins...mjöög gott, lítur vel út. Lengi höfum við pæjurnar einnig stefnt að því að vera með svokallað pjöllukvöld og lítur allt út fyrir eitt slíkt á morgun. Það sem fram fer á pjöllukvöldum fer aldrei út fyrir okkar litlu munna en mikil tilhlökkun er í kerlingunum og er ég ekki frá því að þetta verði athyglivert! Er núna hjá ömmu og afa, fæ pylsu og dekur, enda ekki lengur næsti nágranni þeirra :( snökkt...svo er það bara Hverfisbarinn að hitta Berglindi mína (hef ekki séð í tvoo mánuði)...og rólegt kveld á Víðimelnum með Dreamtime te í einni og karlinn í annarri. Góðar stundir

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****