Halló HÉR! Vissulega vont veður í dag en það breytir litlu því ég er í ágætis skapi og við hlið mér er hún Andrea megatútta og ég er að sýna henni hvernig bloggið virkar...stutt í að maður fari að uppfæra síðuna betur hjá sér en þangað til..verður hún bara svona.
Í gærkveldi fór ég á Sinfóníutónleika og það var meiriháttar. Ég tók Sæma í svona surprise dæmi, út að borða og yfir í fiðlurnar og við vorum bæði thrilled! Mæli eindregið með Sinfóníutónleikum og ef þið skoðið dagskrána fyrir 2002-03 þá er margt í boði...sérstaklega þegar nær dregur jólum, Sálin verður að spila með þeim eitthvað og svo verða ABBA tónleikar bráðlega. Skrifstofurnar eru hægra megin við Háskólabíóið sjálft og dömurnar þar eru afar elskulegar. Guys! Þið verðið að fara. Allir að skella sér!!!
Bestu baráttukveðjur fara til Bryndísar elskunnar minnar sem fór í fyrsta prófið sitt. Ég er bjartsýn en hún ekki. Ég veit hún getur þetta :) Andrea var svo góð að kíkja til mín til Kef þar sem ég sé um bræður mína meðan foreldrar eru í Svíþjóð. Það er svo bara DVD í kveld og náttfatapartý í Heiðargilinu..Friður.
4.10.02
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli