22.10.02

Jakob Frímann Magnússon var með kokkteilboð um daginn, svona líka fínt og flott með veitingum og alles. Það er nú ekki frásögufærandi nema hvað, að hann var með tilkynningu til okkar tónlistarmannanna sérstaklega þennan eftirmiðdag. Hún hljóðaði eitthvað á þá leið að hann væri búinn að taka ákvörðun um að bjóða sig fram á lista Samfylkingar fyrir næstu þingkosningar og mun þá vilja sitja þar fyrir hönd sinnar stéttar, þ.e. tónlistarmanna. Allt er þetta gott og gilt og var Bubbi duglegur með áróðurinn en fáfróðir vita kannski ekki að "popparar" nú eða "rokkarar" lúta lægri hlut fyrir klassískri tónlist svokallaðri því hún þykist víst æðri og betri á einhvern hátt. Nú hlusta ég reglulega á klassíska tónlist og hef mikið yndi af en hlutföll útgjalda frá STEF ná ekki nokkurri átt þar sem klassísk tónlist halar ekki inn nema um 20 % af því sem STEF fær í hendurnar og "við" hin erum 80% prósentin en engu að síður erum við ekki nógu góð til styrkja eða stuðngings íslenska ríkisins! Þetta hefur verið löngu umdeilt mál og er auðvitað ekki STEF eða öðrum samtökum íslenskra hljómlistarmanna um að kenna heldur íslenska ríkinu sem hefur ekki séð tilgang í að styrkja þann iðnað sem hefur átt mestan þátt í að koma Íslandi á kortið undanfarin ár....það hefur allavega gengið afar hægt. Nú vill Jakob á þing og sækist auðvitað eftir stuðningi okkar. Ég styð þennan málstað en fæ mig ekki til að styðja þennan flokk. Það er mín persónulega krísa þrátt fyrir að ég hafi fulla trú á honum Kobba. Það sem ég tel vera best í stöðunni er að allir íslenskir tónlistarmenn, bæði klassískir og poppaðir, taki saman höndum um jafnrétti í þessum málum svo og öllum öðrum. Hættum að húka hver í sínu horni, haldandi að þetta komi okkur ekki við! LÁTIÐ Í YKKUR HEYRA. Nú er svo komið að maður þarf að bjóða sig fram á þing til að koma málum sínum á framfæri. Er sjálfstæðisflokkurinn virkilega með svo mikla meinloku fyrir þessu að hann er ósamvinnuhæfur? Því á ég bágt með að trúa! Áfram Jakob! en skiptu um flokk!! :)

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****