Reykjanesbær er góður staður. Ég er alveg að sjá það. Það er ferlega gott að vera hérna og "one is completely comfortable"! Mamma og pabbi eru líka komin heim og það gerir þetta allt miklu betra.Þau komu í gær af flugvellinum (5.mínútur að keyra heim) og þeirra beið heit eplabaka með ís og karamellusósu...mmmm. Þrátt fyrir tilraunir mínar í eldhúsinu var ég ekki alveg að ná húsmóðurstarfinu sem fólst aðallega í að reka á eftir bræðrum mínum, skutla þeim, hlýða þeim yfir o.s.frv. Ég skil ekki hvernig mamma og pabbi geta gert þetta OG verið útivinnandi. I have a lot to learn.
Ég kíkti um daginn til Bryndísar í nýju "íbúðina" hennar í húsi ömmunnar og það var ægilega kósý hjá henni. Hún kann sko að koma sér vel fyrir sú arna. Ég hlakka til að sitja með henni yfir tebolla og tjatta við hana eeendalaust. Því miður þá er ég að fara út til London og kvíði ég því óskaplega um leið og ég hlakka mikið til. Kærastinn á klaka og Andrea og Rakel og krullinn!!!! ..... en ég fæ heila systur í staðinn og kærastann hennar í skaðabætur. Og HM og TopShop og allar litlu skóbúðirnar sem kalla á mann úr margra mílna fjarlægð..."Komdu, tékkaðu á okkur, láttu ekki svona...þú mátt alveg við því Védís..!" svo hlæja þeir allir að mér, skórnir, því ég á engan pening. :( Riiiight...ég er hætt...
7.10.02
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli