13.1.03

Sálmur

Þetta er ljúfur morgunn. Ég tók rútuna um áttaleytið til Njarðvíkur/Keflavíkur og sit hér með te í Heiðargilinu að "sörfa" á netinu. Það er verið að hafa sig til fyrir útför er mun eiga sér stað þann 15.janúar. Ég er að leita að einhverri kassagerð en það er eins og það sé ekki slíkt hér að finna í Reykjanesbæ....auk þess er ég að pakka og reyna að velja og hafna svo að mamma fái ekki flog. Henni finnst ég pakka of miklu alltaf.
Ég missti af frumsýningu Sólar og Mána e. Sálina hans Jóns míns...sökum anna og þykir miður. Ég öfunda leikarana að taka þátt í þessu. Ég vonast til að sýningar gangi langt fram í maí svo að maður geti nú droppað inn á klakann til að horfa á snilld.
Kvíðimaginn er afar virkur þessa dagana og ég er alltaf að átta mig á hverju ég er að missa af hérna heima með því að fara út. Boddý bara kominn með karl, pjöllurnar mínar (Rachel and Peter) alltaf jafn miklar rúsínur og Maðurinn!!! Maaaðurinn!!! Grenj.....
Haha, þegar ég les þetta yfir hér að ofan mætti halda að ég væri að leggja minn eigin dauðadóm, útför undirbúin, vantar kassa...flott Védís. Svo ég útskýri þetta frekar, þá þarf ég massakassa undir hljómborðið og flýg út þann 15.
Og! lífið er of ljúft til að deyja núna. En það er alltaf hægt að teygja í staðinn!
Góðar stundir.
Jedd

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****