Áfram Ísland! Áfram fólk!!!
Er nú ekki orðið eilítið þreytt að fleyta sér áfram á kynfærunum einum saman eins og forsprakkar annarra flokka? Ég vildi glöð sjá stráka taka höndum saman og skreyta kosningablöðin með því að hrauna yfir stelpur sem eru í stjórnarstöðu. Hvað segði kvenþjóðin þá? Erum við ekki öll manneskjur mér er spurn? Á stjórnmálaumræðan ekki að vera málefnanleg. Neeei, heyrðu! : "KYNSYSTUR HÓPI SIG SAMAN!" Flott málefni!
Þegar nýja forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar hefur spilað öll sín bestu spil með því að kenna hinum og þessum um þetta og hitt og þurft að éta þetta allt ofan í sig aftur, þá er jú auðvitað tekið til þetta gamla góða: "Ég er kona! Kjósið mig!"
Sjálfstæðiskonum stendur þvert á móti á sama og þær blómstra betur nú en aldrei áður. Jú auðvitað segi ég áfram stelpur, stelpur með hugsjónir, stelpur í forystu og stelpur sem kunna að meta góða ríkisstjórn! En þegar það kemur að því að hugsa um málefnin og að taka höndum saman öll sem eitt, öll sem manneskjur, þá segi ég áfram fólk! því það er jú einmitt það sem við erum.
Sumar dömur tala um breytingar (já, en bara breytinganna vegna?) á meðan þær zona út og og tala eins og jafnrétti sé ekki til á Íslandi á meðan þær fljúga á skapabörmunum en Sjálfstæðisflokkurinn lætur verkin tala!
Da Punk
p.s. Check it
29.4.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli