2.6.03

.....yo' mama

Er bloggið ekki orðið vafasamt þegar mæður mæta inn a gestabókina og kvarta yfir dræmri íslenskunotkun?

Yfir í annað... Gummi og Bryndís eðalhjú komu með x-boxið í gær...sem er reyndar farið að verða eins og litla barnið þeirra...þau koma með það í heimsókn og sýna nýjustu listir þess og hvað það er sniðugt. Gjuuuðveik mynd, Bruce Almighty!...við hlógum yfir okkur. Mikið var stappað í gólf og hristist leddersófinn mikið. Ánægð með Jim Carey... kominn tími á eitthvað svona almennilegt, ótrúlegt hvernig hann leikur sjálfan sig og það er leiksigur.

Mikið skrall hefur verið um helgina og þarsíðustu og þar inn á milli og ég er alveg búin á því. Ég er hætt að fara í bæinn... uhh, þangað til ég fer út aftur.
12.júní, þetta er staðfest og nú þarf ég bara að fara að leita mér að íbúð því systirin er að koma heim í sumar að vinna og ungar stúlkur tvær munu leigja út íbúðina í sumar. Gott fyrir Öddu Stínu, ekki alveg jafn lækker fyrir lil' sis... en ég get nú ekki kvartað enda studdi ég þessa hugmynd alfarið.

Nú getur maður ekkert slett einum góðum á íslensku því mamma er að fylgjast með. Mamma! I've said it before and I'll say it again: Slaken!!!

Punkz out

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****