.....let it be
...skjótt skipast veður í lofti enda kominn vetur!!! Vúhú, grínimaðurinn.
Þetta hefur verið hið ágætasta stopp, lærði að baka og vera húsfrú, skeina góðu fólki og elska góðan mann. Nú er þeim kafla lokið og næsti hefst NÚNA.
London calling! og ég verð flogin út á laugardaginn í faðm minnar fallegu systur sem bíður með miðann á Rómeó og Júlíu sem er einmitt verið að sýna og verða þar níu dömur í einni ferð og held ég að svæsið kveld bíði manns. Fékk allavega sms: "bring your high heels!"... ekki amalegt það.
Flippaði í Kringlunni með Rakel áðan og er komin með hina fullkomnu kaffihúsapeysu til að hlýja mér í. Þó hlýtt sé nú í London þá hefur maður það hyggelig í klæðaburði líka. Svo hef ég verið heimilisköttur hjá Rach og Vicks og verð ég að segja að eldamennska mannsins er vonum framar og ekki væri úr vegi að hann fjölgaði sér mikið svo karlkynið líði ekki skort í þeim hæfileikum.
Afi og amma úti á Kanarí og Hvassaleitið hefur verið dvalarstaður minn og ekki laust við að einmanaleikinn sæki á mann... þegar jólalegt er úti.
This too will pass :)
Ég ætla að massa þetta blogg þegar út er komið og megi ferðir mínar um þennan vandrataða veg tónlistarbransans verða ykkur til geðs og skemmtunar.
Nú fer allavega meiri tími í að dúllast í sjálfum sér, það er víst.
Punkz Out
Dísa skvís
30.10.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli