....let it snow, let it snow, let it snow!!!
Mér finnst svo dásamlegt að anda að mér köldu loftinu og finna hvernig ísdrottningin í vetrarlandi er að búa sig undir að storma á okkur öll! Ég elska veturinn og ég er farin að hlakka til jólanna. Geri aðrir betur!
Ég hef unnið núna myrkranna milli á Grund 100% á uppáhaldsdeildinni minni V3A en er núna búin að minnka við mig og komin í 40% vinnu því tónlistin er eitthvað að frekjast og vill meiri athygli. Ég get ekki kvartað enda ágætt að eiga helgarfrí stundum og geta svo dúllað sér á Grund.
Sæti er á fullu í skólanum og samur við sig... mikið að gera hjá öllum nú þegar veturinn er genginn í garð.
Sótti Bryndísi og Gumma heim í lánsíbúð þeirra um daginn og sá þá hvað þau eiga vel saman....sérstaklega þegar ilmur barst úr eldhúsinu og Guðmundur gekk fram með svuntu!!! ÚÚúúúú guuurl
Töpuðum okkur í Rúmfatalagernum um daginn og rumpuðum af handklæða,rúmfata og aukadóts kaupum á hálftíma. OG! ég á fallegan blandara og get blandað mér boozt hvenær sem þörfin sækir á mig. Jeij! Mjög mikilvæg eign.
Langar svo að fara að uppdeita síðuna mína og vera með svona flott dæmi eins og Krullinn og Gumminn....en úps, bara hef ekki tíma.
Góðar stundir...
Trútsinn
5.10.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli