.......ber er hver að baki nema sér bróður eigi!
Hjálpi mér allir heilagir... nú eru litlu bræður mínir farnir að hóta því að lemja vonbiðil og annan til að passa upp á stóru systur sína. Síminn hjá mér má ekki "bípa" og þeir eru farnir í málið.
Litlu dúllurnar... hormónarnir farnir að láta á sér kræla og þeir ætla að sigra heiminn.
Nú finnst mér eins og allur jólamatur heims sé í maganum á mér. Ég er á svona sea food diet- I see food and I eat it! "drrrums please...!"
Rakel og Victor hafa boðið einhverjum í áramótaspilerí á morgun og ég hlakka mikið til enda ætlum við að möndla Mojito með mikilli list og Krullinn er m.a.s. komin í gírinn. Ég hef tekið saman mína bestu tjúttdiska og jafnvel komin með búning! Ekki amalegt það....
Ég þarf að panta mér far út til London aftur en það er svo erfitt að skilja við Klakann svona "endanlega- í bili" og því er ég eitthvað lengi að ákveða dagsetninguna. Smeyk við heiminn kannski...getur verið. En það er líka spenna í loftinu. Eitthvað óráðið og dularfullt við framhaldið.
Það sem er þó erfiðast er að skilja við fólkið sitt. Foreldar og beautiful broz ætla að vera dugleg að kíkja til okkar Aldísar en mínir elskulegu vinir verða kannski æ uppteknari með hverju árinu sem líður. Ég treysti á það að Krullinn og Rakel fái flugfreyjuna í sumar og þá verður nú glatt á hjalla í Lundúnaborg.
Innblástursinnskot:Heppnin er eins og kamelljón. Gefðu henni smá tíma og hún mun vissulega breytast.
31.12.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli