....jóla hvað?
...ég verð nú bara að viðurkenna að ég er ekkert alltof sátt við þessa jólastemmningu. Ég hélt fyrst að ég væri komin í gírinn en finnst eitthvað vanta til að jólaandinn komi yfir mig... hmmm... kannski er sú staðreynd að þau ERU EKKI KOMIN eitthvað að flækjast fyrir manni... en samt eru þau úti um allt. Fólk er eitthvað að misskilja tímasetninguna á þessu.
Ég ætla að hefja allsherjar leit. Hver stal jólunum frá Védísi? Öllum er boðið að taka þátt og ef einhver veit svarið, lát heyra.
Ég skrifaði jólakortin í dag, skellti á fóninn,kveikti á kertum og sveif. Kannski er stemmningin þá yfirvofandi eftir allt saman. Hún þarf bara ekki alltaf að vera til staðar.
Jæja, æfingar að byrja svo að það hlýtur að koma manni í gírinn. Ég er ekki einu sinni búin að borða tvö fyrstu súkkulaðin í dagatalinu... ég! mesti mathákur Klakans. Iss.... ég ætla að skella mér í þetta núna. Fá sykursjokk, klára allt heila dæmið og þá kannski kemur andinn.
Nei, þá er það bara sammari.
Punkzout
3.12.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli