...jesus Bobby!
Æfingar drógust á langinn þetta kveldið og loks þegar ég er komin heim í Hvassaleitið til ömmu og afa þá get ég ekki fest á mig svefn.
Hvað er þá betra en að blogga eilítið og hreinsa höfuðið af hugsunum sem eru að þvælast fyrir!
Eftir miklar pælingar uppi í bedda (sem er ávallt vel til hafður og hlýr fyrir litla barnabarnið) ákvað ég að rölta fram og inn í stofu þar sem amma Hervör svaf í sófanum fyrir framan imbann. Ég rétt svo ýtti við henni svo hún myndi ranka við sér og við fórum að spjalla á fingramáli og munntjáningum (hún er heyrnarlaus). Svo veit ég ekki fyrr en gamla er komin með fótakrem og annað slíkt og byrjar að bera á sig. Ég skellti mér í sama pakka og byrja að bera á mína fætur og hélt nú að þetta myndi duga til að ég svæfi betur. Þá fer mín ástkæra amma úr buxunum og sýnir mér marblettina sem hún fékk þegar hún rann í hálkunni um daginn. Situr svo spök á nærbuxunum einum saman og klárar að bera á sig,lærin og restina. .....og einhvern veginn var þetta of mikil vakning til að ég geti nokkuð lúrað þessa nóttina. Amma mín er snillingur.
En þetta er hins vegar leiðindar ástand því ég þarf að vakna í sexunni í fyrramálið til að mæta í Ísland í bítið og syngja með Frostrósum. Ef þið rekið augun í þetta í fyrramálið þá vitið þið af hverju Veddarinn er með lafandi annað auga,viskí rödd og fuglahræðuhár.....
Ég einfaldlega get ekki beðið eftir helginni. Þá er geðveikin búin og stutt í jólin.
Biðjið fyrir mér elsku börn....
Insomniac
17.12.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli