.....shake it like a polaroid picture!
Maður er hálf vankaður eftir allar samkomurnar og veisluhöldin og er því dásamlegt að skreppa í sund hér í Reykjanesbæ og ganga úti í ferska loftinu. Reykjanesbær! Einfaldlega bestur! .....ég er ekkert á prósentum
Svo er komin inn ný myndasería, við tókum gott kósýkvöld hér um daginn og mamma og pabbi töpuðu sér í rómantíkinni.
Ég er að hafa mig til fyrir Londres og er þetta ákaflega erfitt. Ég þarf að taka allt með mér en er það heldur þungt og mikið. Nú hef ég þó safnað saman öllu mínu dóti endanlega héðan og þaðan og það er ákveðin yfirlýsing fyrir mitt litla hjarta að ég er að flytja út "for good!".
Krullinn hefur ítrekað tilkynnt mér laust pláss á Eggertsgötunni þegar hún flytur. "Það verður auka sæng og koddi bara fyrir þig!" Ég held hún geri sér ekki grein fyrir því hvað ég á eftir að nota þessa setningu mikið þegar ég kem svo á Klakann. Svo hefur hún einnig lofað mér því að setja karlamál sín á frest svo ég geti átt hana alveg ein og við tvær verið vitlausar saman í Simpson náttfötum.
Ég er einmitt komin með ágætis áramótaheit. Engir karlmenn, ekkert vesen! Það er eins og ég hafi séð ljósið. Árið 2004 verður vinna á ofan vinnu, tónlist á ofan tónlist. Já já... ýmsir skeptískir hér á bæ.. en þetta skal standast.
Gleðilegt nýtt ár yfir til ykkar á kantinn!
Veddarinn sér gott ár framundan.
5.1.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli