9.1.04

.....one ring to rule them all!

Þetta væri ágætis frasi fyrir hjónaband. Held ég forði mér frá slíku, tja ...allavega þetta árið.

Ég er s.s. agndofa hér eftir HringadróttinsMARAÞON með Krullanum mínum fagra. Við "hittumst á miðri leið" með þetta og þar sem hún hafði ekki séð mynd nr. 2 var sú mynd leigð og strax eftirá var farið í tíubíó á Return of the King.

MAGNAÐ! Ótrúlega upplífgandi og ég vildi ekki að hún myndi enda... nokkurn tíma. Ég gæti verið í þessari draumaveröld endalaust. Staðfesting á þeim vilja var svo þegar út var komið eftir bíó í íslenskan grámyglulegan raunveruleika. Ég væri til í að búa í svona Héraði eins og Hobbitarnir. Rækta eitthvað grænt og eignast fullt af krökkum. Krullum öllu heldur. Ég vil barn með krullur. Og þar sem hárið mitt er sléttara en sléttujárnið sjálft þá er ég í vandræðum ... nema að makavalið feli í sér leit að krullhærðum félaga. En ég nenni ekki alveg að takmarka leitina svo mikið.

Svo er þetta síðasta helgin mín á margumtalaða Klakanum og ég ætla að taka þetta í nösina... nýta mér alla Veddarans orku og toppa jólin og áramótin með þessari helgi. Ég ætla að nýta mér sundlaugar Reykjanesbæjar á morgnana og ljósadýrð Laugavegs á kveldin. Vaka er með gjörning á morgun og svo er 1001 nótt með nýársfögnuð á Felix og verður jú hinn margumræddi Krulli tekinn með mér til yndisauka. Hún er fallegur og upplífgandi félagsskapur.

...og nú þarf ég að hvíla lúin bein. Netið er orðið að einhverju sem ég þrífst á.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****