-þakklæti og hressleiki-
Frá hjartans rótum þakka ég allan þann stuðning sem mér var sýndur í Ljósalaginu 2004. Það er svo gott að eiga góða að! Þetta var líka svo GAMAN! úff.. dásamlegt.
Ég setti inn tvær myndir frá atburðinum hér og svo mun ég setja inn fleiri myndir frá kaffiboðinu í Heiðargili þar sem fjölskyldan í hátíðarskapi brá á leik og Krullinn, Rokkarinn og Gudda sátu undir góðu kaffi og hvítu súkkulaði. Einnig tók ég myndir frá Menningarnótt í gærkveldi og var það hin ágætasta skemmtan.
Það eina sem vantaði þetta kveld var Aldís mín en hún sat með Völu og Bjössa úti í London og fylgdist með þessu á netinu eins og einhverjir í fjölskyldunni gerðu úti á Virginia Beach í USA!
Svo komu þær gleðifréttir í póstinum sama dag og keppnin var, að Sigfús Jóhann hefði verið valinn í úrtakshóp fyrir Unglingalandsliðið í körfubolta og eru æfingar nú þegar byrjaðar en Siffi greyið hafði ekki hugmynd um þetta enda bara í vellystingum úti á Flórída. Litli minn brosti út að eyrum og hef ég aldrei séð svo ljómandi augu né hamingjusamt lítið hjarta. Fúsi hringdi samstundis í Inga Þór þjálfara sem Fúsi lítur mikið upp til enda var Ingi lengi með KR-ingana þegar þeir unnu meistaratitilinn og annað slíkt.
Því má segja að gleðin sé ríkjandi hér í Heiðargilinu og er Veddarinn spenntur að fljúga aftur til London þar sem við verðum á kafi í flutningum og kössum og segjum skilið við húsið góða á Highlever. Svo er mín bara hætt að vinna sem læknaritari því fjárráð hafa heldur betur breyst og undirrituð komin í "góðu málin" í bransanum í Lon og Don. Svo byrjar skólinn í október og lífið er allsendis fallegt.
Svo var kíkt á Menningarnóttina í gær og var ég bílstjóri kveldsins. Við skvísurnar nutum flugeldasýningunnar með foreldrum Rokkarans og röltum þarna um bæinn. Haft var orð á því að okkur liði eins og gömlum kerlingum innan um unglingana sem fylltu bæinn með látum og áfengisandremmu. Gvendur brósi var í bænum með vinum sínum en karlinn var nú ekki vígalegri en svo að fara svo bara heim með systur sinni upp úr 00.30 eftir að hafa gætt sér á Hlölla og Diet Kók. Hann segir Coca Cola og Malt vera sitt bland. Óskandi er að sama hugarfar haldist út menntaskólaárin. Við fórum svo í Hvassaleitið þar sem amma og afi biðu spennt að heyra um ómenninguna á Menningarnótt. Lúlluðum við saman í gestaherberginu og var ég afskaplega fegin að vita af karlinum vid hliðina á mér en ekki einhvers staðar niðri í bæ (",) -þetta eru nú ekki strákarnir mínir fyrir ekki neitt.
Nú er næsta tilhlökkunarefni löngu útpæld haustferð okkar systra til Guðrúnar Jóns og Daða hennar í Köben þar sem Krullinn og Single 2000 stelpurnar verða einnig að skemmta sér.
Kærar þakkir, enn og aftur alle sammen. Óska ykkur alls hins besta og að þið séuð jafn hamingju og gæfusöm og ég er núna.
Veddarinn
22.8.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli