-damsel in distress-
-Allt er thetta dagsatt er her er ritad med engum ykjum ne yfirlaeti-
Eg maeli ekki med thvi ad vera a litilli ford fiesta (a.k.a. litla jardarberinu)a hradbraut i London - thegar rafmagnid er buid a bilnum.
"ansans vesen"
Eg var a fundi i Camden Town i gaer. Hafdi skellt mer a berinu og prisadi mig saela med aksturshaefni mina i storborginni. Haegri vinstri, stoppa a ljosum, drap aldrei a honum -thrusugella! Svo er eg kem af fundinum tha fer billinn ekki i gang. Ljosin voru eigi a og einungis midstodin hafdi verid a fullu thegar eg keyrdi thvi thad er steikjandi hiti i borginni. Eg taldi thetta thvi einkennilegt enda nota eg litid ljosin a bilnum enda tharf ekki ad kveikja a theim her i borg, fyrr en rokkvar.
Eg ytti bilnum eitthvad afram inn i hlidargotu og stoppa til ad hringja...... -inneignin buin. Eg bada ut ollum hondum og hugsa mer gott til glodarinnar thvi eg vissi af raftengjunum i skottinu sem afi Gvendur sagdi okkur systur thurfa einhvern tima ad nota. Alltaf reynist Gvendur afi sannspar. Enginn stoppar.
Rednecks og gaurar med hanakamb eru algeng sjon i Camden og thar var allt morandi i thessu lidi. Enginn stoppadi. Eg thurfti ad skilja bilinn eftir og hlaupa i naestu arababud til ad kaupa mer inneign i simann. Eg sny aftur fra Halim Al og gaesahud og ounandi tilfinning fer um mig alla. Billinn er horfinn. Eg stoppa naesta pick up bil og spyr hvort their hefdu sed astina mina nokkud dregna i burtu? Ju ju, their konnudust vid thad og bentu mer a hvert eg faeri til ad saekja skrjodinn. Eg tek straeto til ad saekja bilinn hugsandi til thess hvad ALdis myndi nu segja en held tho minni stoisku ro enda ekki thekkt fyrir annad: "Ekkert vael, ekkert rovl, bara hvad er vandamalid? redda thvi".
Indverjinn og pundin 200
Eftir ad hafa thraett vid einhvern Indverja sem kunni ekki stakt ord i ensku eda tha ad hans hrikalegi hreimur hylmdi yfir med serhljodunum, tha fae eg bilinn gegn thvi ad greida £200. Thetta munu vera 26.000 islenskar kronur. Eg beit hart i thad sura epli, nadi ad raesa bilnum og dreif mig i burt thadan enda komin med nog af thessu skita okur pleisi.
Jamie og Fayney
Eg lulla afram a litlu dullunni og hun byrjar ad hosta eilitid og skroltir tharna afram einhvern spol thangad til hun drepst. Tha eru god rad dyr. Eg hringi i Jamie og Fayney sem eru med studio tharna rett hja. Their koma, thessar elskur, eins og hendi vaeri veifad a einhverjum thrusukagga og Veddarinn tekur upp tenglana godu fra afa Gvendi. Billinn raesir og urrar eins og ljufasta kisulora og vid teljum thetta duga alla leid nidur i Nottarann, heimaslodir minar.
King's Cross
Og aftur lulla eg afram og er komin nidur a King's Cross med titrandi bifurnar i vinstri umferd (sem eg hef nu akvedid ad motmaela alfarid), talandi vid Gud eins og hann vaeri pabbi minn. "Godi Gud, ekki gera mer thetta! -eg verd ad komast heim! Vid getum thetta saman. Ok, Gud!"...... oooog hun drepst aftur. Eg nae ad stodva loggubil thar sem tveir logregluthjonar glottu vel og mikid ad mer - thangad til their sau ad vandamalid VAR alvarlegt med bilinn. Their gafu mer "jump start" og eg nadi ad fara ut a hradbrautina.
Riddarinn a blaa Bimmanum
Eftir ad hafa tekid vid blotum Arsenal addaenda sem theystust framhja mer a 90 (eg a 20) med brosi a vor og fingurmerkjum reidra husmaedra med stoiskri ro, deyr skrjodurinn enn a ny. Eg stig ut. Thad rignir hundum og kottum yfir Londonborg. Stoisk ro? JA EINMITT! Eg brotnadi gjorsamlega nidur, sat i bilnum med hausinn a styrinu og thad eina sem eg gat hugsad var "af hverju eg?". Gud hafdi yfirgefid mig. Vid vorum ekkert saman i thessu lengur. Eg sit tharna med raudbolgin augun, engan til ad hringja i og eini felagsskapurinn var sa sem hafdi brugdist mer -litla jardarberid.
Tha er bankad a ruduna hja mer. Eg lit upp. Rennandi blautur ungur madur med stort bros a vor stendur tharna uti a hradbrautinni buinn ad leggja bilnum sinum fyrir aftan minn og vara alla hina bilana vid i leidinni med hasarljosunum. EG stig ut. "Hello, there sweetie!" segir hann. Eg aetladi ad segja eitthvad hnyttid en thad var stor koggur i halsi mer, eg orkadi varla ad tala thvi eg vissi eg myndi grenja: "I'm soo soorryyyyyy....*sniffle sniffle*" grenja eg eins og halfviti. "Don't be silly, let's get you home!" segir hann med blidri rodd og hjalpar mer ut ur bilnum. Eftir ad hafa startad honum fyrir mig, ytt honum aleidis fyrir mig og keyrt a eftir mer til ad eg kaemist heim i lagi, var eg komin heim rennandi blaut, 200 pundum fataekari og einu simanumeri og reynslunni rikari.
Thess ma geta ad jardarberid er i vidgerd nuna, tharf ad skipta um battery gaeja a thvi. Systir min er hress. Inu.
Hvad hef eg laert af thessu?
VINSTRI UMFERD ER OMURLEG OG EG HATA ARSENAL!
Damsel in Distress
10.8.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli