-það er ekkert betra-
...en Ísland. Ég elska að geta hent mér í bílinn, brunað af stað, ráðið lagavalinu og keyrt Brautina fram og til baka eins og atvinnumaður. Einnig elska ég fólkið mitt hér, prinsessurúmið og útsýnið úr Heiðargilinu. Það getur ekkert toppað þetta. Því er gott að hafa þetta í bakhöndinni þegar maður er ferðalangur og Londonbúi. Ljúfheitin á Íslandi eru of mikil til að virkilega reyna á mann, fá mann á ystu nöf og til að taka áhættur. Því tel ég alla hafa gott af því að búa erlendis. Þar sem það er tiltökumál að stofna bankareikning, bílar eru lúxus og leiga og reikningar verða þín versta martröð. Í kjölfarið kann maður að meta lífið betur, berjast við hindranir sem eru á veginum og taka þeim fagnandi (eftir á að hyggja).
Barði, góðvinur og félagi á afmæli á föstudaginn og mun halda upp á herlegheitin á laugardaginn kemur. Rakel er að fara í Köbenferð til Hildar og Krullinn ætlar að taka sama pólinn á hæðina og skella sér til Parísar í einhvers konar keistferð. Því verður enginn hér til að hafa hemil á mér og sé ég fram á svæsna helgi í faðmi hljómsveitarmeðlima sem kenndir eru við Bang Gang. Öss.
...já einmitt Védís, ég sé þetta í anda! Védís segir helgina verða svæsna, Védís kemur sér í gírinn, Védís endar á bíl, komin í bólið 23.30. Ég hef ekkert úthald í þetta lengur. Ef maður færi nú að sjá eitthvað almennilegt á þessum skemmtistöðum, þá væri ellan önnur -en einu hnossin sem þar eru höfða til íslenskra karlmanna. Svo eru þeir þarna sveittir, fullir, með blýantinn á lofti í tilvistarkreppu. Sjáum til.
Skvísdís
7.9.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli