12.10.04

-súpervúman-

Ja hérna. Tíminn líður hratt þegar maður hefur mikið að gera.

Skólinn er eins og ljúffeng súkkulaðikaka= layers and layers of deliciousness!!! Nú hef ég eytt rúmri viku í að slefa yfir þeim hugbúnaði og tækjaðstöðunni er skólinn skartar og ÉG má fikta við. Himneskt. Verkefnin eru alls konar og hef ég uppgötvað nýjar víddir í músík.

Nú hef ég svo lausan tíma þar sem mútta var að fara frá okkur. Hún er á leið til Parísar að hitta pabba sem mun sækja ráðstefnu þar. Það var þvílíkt stuð hjá okkur mæðgunum og var mikið stjanað við múttu litlu sem hefur verið svo dugleg í vinnunni heima. Hún kom hér á laugardaginn og átti þetta svo sannarlega skilið.
Svo mikið er að gera hjá mér að ég þurfti að aflýsa Köbenferðinni næstu helgi svo ég kæmist yfir öll skólaverkefnin áður en ég held aftur á Klakann fyrir Airwaves (Bang Gang föstudaginn 22.október í Listasafninu). Köben fer ekki neitt. Ég er að reyna að segja sjálfri mér það. Litla spennan sem var í loftinu fyrir þessa ferð... en ég snökkti nú ekki lengi. Ég þarf bara að líta einu sinni inn í stúdíóin í skólanum og brosið er komið aftur á stelpuna.

Ég er einmitt á leiðinni í skólann núna!

Lífið er dásamlegt!

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****