6.3.06

-efni og ekki efni-

Ég sit hér með nýju mac tölvuna mína í kjöltunni með glott á smettinu sem ekki verður af mér máð. Móðir mín góð kemur svo með aðalgræjuna eða "Apogee Mini Me" í kvöld sem mun tengja hljóðfærin við ferðatölvuna og þar fram eftir götum. Þetta er ein sú besta græja sem fæst á markaðnum og mig er farið að klæja í lófana. Tilhugsunin ein um að ég muni meðhöndla hana eftir um tvo klukkutíma veitir mér unað engu líkan. Græjan lenti á Klakanum í gær, tafir urðu á afhendingu hennar en nú er töfrastundin runnin upp.

Nú er bara að flytja píanóið yfir til okkar og restina af hljómborðasafni Þollans og þá erum við ansi vel sett. Það væri jafnvel tilvalið að efna til hugmyndasamkeppni hér á Veddaranum um eitthvert eðal nafn á hljóðverið litla. Tillögur skulu færðar hér inn í ummælin (comments). Ég treysti á minn framúrskarandi vinahóp að koma með góðar og nytsamlegar tillögur. Ekkert væl, ekkert múður og gjörsamlega engin vægð. Engin!

Koma svo!

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****