24.4.06

-eins árs gutti-

Gabríel Örtenblad Bergmann er 1 árs í dag. Þetta hefur verið annasamt ár hjá honum síðan hann leit dagsins ljós.


Hann hefur staðið í ströngu við að þrífa fyrir foreldra sína en bæði hafa þau verið í námi og Gabríel tók að sér að annast heimilið. Verkaskiptingin er hrein og bein.


Hann hefur meðfætt tóneyra og hefur starfað við tónlistarráðgjöf í frítímum, þ.e. milli húsverka.


Syndir kílómeter á dag.


Hringir reglulega til ættingja sinna í Danmörku...


...og kann sko á dömurnar.

Til hamingju með afmælið litli snúður!

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****