18.10.06

-....og anda!-

Eftir lokatörn í svokölluðu "demóferli" plötunnar stökk ég upp í vél til Mónakó sem er jú óeðlilegur áfangastaður í sjálfu sér fyrir fátæklinginn mig.. en Ralph hennar Aldísar á hér íbúð og ekki var úr vegi að nýta sér það. Nú er rétt hálfnuð vikan sem við Halli ætlum okkur hér í smáríkinu í hvíld og orkusöfnun fyrir komandi haust.

Vinna við plötuna hefur liðið áfram áreynslulaust í sjálfu sér, enda gengur það oftast smurt þegar fólk vinnur vel saman og er sammála í flestu. Mér þykir fróðlegast í þessu ferli að læra inn á sjálfa mig sem stjórnanda og keyra mig svolítið áfram til að ögra sjálfri mér og finna hvar styrkleikar mínir liggja. Einnig hef ég þurft að kyngja því að geta ekki gert allt sjálf sem var ansi stór biti fyrir mig að renna niður en í kjölfarið get ég viðurkennt það að fleiri hendur vinna jafnan fjölbreyttara verk. Músíkin er því að mínu mati dásemdin ein og ég hlakka afar mikið til að koma plötunni út. Tími kominn á kellu, 6 ár síðar In the Caste leit dagsins ljós. Úff, ég er orðin stór núna.
Þess má geta að ég er með myspace síðu www.myspace.com/vedis og hvet ég alla sem áhuga hafa á, að kíkja á hana og fylgjast með ferlinu. Þar er að finna tvö lög, eitt eftir mig sjálfa sem ég gerði einnig "dúkkulísu" myndband við hér um árið og annað er samið af mér og Michael Fayne sem er hinn eini sanni "Rainmaker". Það lag okkar er svo á samnefndi plötu "The Rainmaker" sem mun koma út undir HardCell Music en það er einnig útgáfan fyrir plötuna mína. Þessi lög verða ekki á plötunni svo þau gefa ekki forsmekkinn af komandi efni en gefa þó eitthvað Veddalegt í skyn sem ætti að gleðja mannskapinn, nú eða ekki og þá getur mannskapur hlustað á eitthvað annað.



Mónakó er einkennilegt ríki. Stærð þess nemur um stærð Seltjarnarness og konungshöllin gnæfir yfir smábátahöfnunum (ef "smá" bátahöfn skal kalla) og þakíbúðirnar skarta sundlaug með þyrlupalli og allt er eftir þessu. Við leituðum heillengi að matvörubúð svo við gætum eldað heimavið í stað þess að fara á hausinn út frá snæðingi á veitingastöðum, og loks er við fundum matvörubúð þá heitir hún Casino og bótoxsprautaðar afgreiðsludömur bjóða manni góðan daginn.
Þetta eru einkennilegheitin. Hins vegar er önnur hlið á Mónakó sem fellur betur í kramið hjá mér. Loftslagið er hlýtt og gott. Miðjarðarhafið glitrar og endurkastar bjarma á rúður húsanna og litlar þröngar rómanskar götur gefa manni innsýn í lífið hér forðum daga. Grace Kelly sem svo sögulega giftist Rainier fursta af Mónakó er svo í miklu uppáhaldi hjá mér. Mamma gaf mér ævisögu hennar þegar ég var um 13 ára gömul og ég drakk í mig hvert einasta orð og felldi tár er kom að bílslysinu sem tók líf hennar.

Ég sit úti á svölum á 14.hæð og horfi yfir Miðjarðarhafið. Það er tekið að kvölda,svalur vindur hríslar um mig og ég hugsa heim á Klakann. Ég sakna svo fjölskyldu minnar og er farin að hlakka til jólanna. Það er margt framundan og ýmis uppákomur heima sem gefa í mig og á og ég get ekki beðið eftir næsta áfanga.

Það var kominn tími á góða færslu frá mér! Ég biðst forláts. Ég hef bara verið svo tóm undanfarið. Öll mín ritorka fer í textagerð og tónlist :)

Ástir og yndi

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****