13.8.02

Mikil afslöppun í Reykjanesbæ, kíkti á Bryddarans síðu og er víst allt að gerast hjá henni. Ótrúlegt hvað útþráin stingur mann. Nýkomin heim og mig langar strax út aftur. Ég græt það ekki lengi, fer strax í september til Londres...vei vei vei.
Langar að vinna eitthvað meðan ég grúska í músíkinni, spá í að tékka á Hrafnistu, langar að gefa eitthvað af mér. Gömlu eru alltaf svo þakklát. Bergþóra del Sol gamla bekkjarsystir og roomate del Sol með meiru, er að vinna þar.
Síðastliðið laugardagskveld héldum ég og Sæmi huges partý á Víðimelnum og þetta kom svona í skömmtum. Þar hitti ég allar stelpurnar mínar aftur með tölu, hef ekki séð flestar lengi vel. Þar var snakkað og eyrað á músík og annað slíkt sem fylgir laugard.kveldum og endað í bænum. Úfff...hip hop snillingar á Priki vöktu mestan áhuga og var tjúttað fram á nótt en endað í að draga karlinn heim sem talaði tungum. Mikil hlutverkaskiptan þar í gangi þar sem ég tók allt slíkt að mér í Eyjum á Þjóðhátíð. Ágætis jafnvægi hér.
Barði félagi úti á landi víst með France og hinni gellunni, þær eru einmitt franskar..eðal konur og þar fer fram einhver stuttmyndavinna. Ótrúlegt hvað flýgur í kollinn á góðvini mínum. Pant vera úti á landi núna. Ég þarf að plata Sæma eitthvað...meiri sól meiri sól....
Bryndís, miss u girl.

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****