Rakst á spjallsíðu eina á torg.is að ég held og þar var fólk að auglýsa skoðanir sínar á þessu bloggi. "Ömurlegt að vera að surfa og lenda á "ég heiti Jón Jónsson og vinir mínir eru:....." óþolandi þetta blogg, einhverjir nóboddís að láta heyra í sér!" Voðalega er fólk eitthvað biturt. Maður ræður hvað maður les, þetta er ekki eitt af þeim áreitum íheiminum sem á að gera ólöglegt. Eins og bloggarar séu að "ryðjast inn á heimili annarra"? Þetta blogg er algjör snilld. Allt má nú gagnrýna en bloggið er kærkomin viðbót í daglegt amstur og leyfir öllum að tjá sig eins og þeir vilja. Ekkert kjaft..
Bryndís er komin heim vúha...sem er mjög mikilvægt. Menningarnótt gerði góða hluti, flugeldasýningin var æææði, aldrei séð annað eins (þó að sýningin í Eyjum sé alltaf best) og það er greinilegt að menningarnótt í Reykjavík er orðin alþjóðlegt fyrirbæri því ég heyrði ítölsku í gríð og erg og kanarnir voru allsráðandi. En eftir tólf leytið var þetta ómenning, það er víst. Háhælaðar dömur eiga ekki leið í bæinn þegar glerbrot prýða göturnar og blóðugir drukknir karlmenn leita á þær. Ónei. En engu að síður gott kvöld svo lengi sem maður hélt sig réttu megin götunnar og hélt í karlinn sinn.
Háskólinn er að byrja núna 2.september að því er virðist og verðum við skötuhjúin að færa okkur til þegar nær dregur. Sæmi hefur verið að vinna hér í Kef og ég að rúlla á milli Reykjavíkur og Nesbæjar. Svo er það bara Grund, byrja strax á miðvikudaginn sem er gott í alla staði sérstaklega þar sem það er hinum megin götunnar, rétt hjá Víðimel. Vúhú. Þessi gömlu voru rosa hress þegar ég leit inn á Grund að sækja um. Ég gældi við að láta leggja mig þar inn þar sem ég hef hagað mér eins og skoppandi kringla með rakettu í rassgatinu. Ég get kannski poppað þetta upp á elliheimilinu, spá í að taka með mér Ice T og blasta þetta yfir liðið : "I'm you' mama, I'm you' daddy, I'm you' nigga' in the alley..." Just a thought. Skál í boðinu góða fólk. Britney, ég er með þér í huganum!
19.8.02
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli