Halló hér. Ég hef verið léleg að skrifa. Vinn á Grund. Mun hætta 29.sept. jeij. Mæli eindregið með því að pjattað fólk fái sér vinnu á Grund.. Múaaa ha ha...múúúaaahaha. Þetta er æðislegt en tímafrekt. 100% vaktavinna getur verið krefjandi. Þetta er samt orðið svona annað heimili mitt, ég stundum hlakka til að setjast niður í "rapport" á morgnana þar sem farið er yfir nóttina og hvernig allt gekk, ilmandi kaffi lyktin og gott fólk sem á það allt sameiginlegt að skeina gömlu fólki. Úps, ég datt út. Ætlaði að hafa þetta svaka rómantískt.
Quarashi tónleikar voru magnaðir, mjög ánægð með þá, greyin samt að missa svona góðan gítarleikara. Þó, hef ég trú á þeim. Rottweiler voru flottir...þangað til þeir fóru að frumflytja efni af nýju plötunni, núúe, eitt lag heitir Árni Johnsen. Frumlegt. Núúe...hann er s.s. lufsa, já og Frikki Weis líka. LUFSA ( L-merki með fingrum á haus.) Eins og þeir geta kveikt í manni...úff, þetta var alveg til að slökkva eldinn. Mér leið eins og ég væri komin á áróðursfund í Austur Evrópu á tímum nasisma og óforsjárhyggju. Rottweiler ekkert í samanburði við Quarashi. Ágætis afþreying þó. Ég hoppaði eins og vitlaus með Qua. með Óla félaga, sem nú er farinn til London aftur í leiklistarnám. Hann klára á næsta ári!! Vei vei vei. Einnig var ég með Bryndísi og Sæma. Ég held að Sæmi hafi ekki alveg fundið það í sér að hoppa en hann var duglegur að slamma hausnum kurteislega með. Eins og hann er mikill rokkari...skrítið. :)
Svo styttist í að ég fari til london...c.a. mánuður þangað til og þá mun ég gista hjá systur minni og kærasta hennar, Aldísi og Svenna tásuling.
Nú var pabbi að koma heim..hann er svo mikið rassgat og svo duglegur líka. Við ætlum að fara saman í bæinn með brósum mínum, Gumma og Siffa. Ég ætla að vera óggsla mikill rokkari og fá Gumma til að skippa eins og einum klass til að ég geti mætt í vinnuna á réttum tíma. Éttlað knúsa litla pabbarassgatið mitt núna. Æt. Góðar stundir.
18.9.02
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli