22.9.02

Jæja. Eftir erfiða viku var ákveðið að taka keistið á þetta og skella sér út á land, upp í jeppa og brunað í Hreðavatnsskála...í bústað góðan og slakað á. Föstudagurinn var ekki síðri en þá var skipt um landshluta :) og farið í Hveragerði í stelputjútt til Evu. Jeij. ótrúlega girnilegar veitingar og skemmtilegar stúlkur. Frábær skemmtun og Eva á heiður skilinn. Bryndís var vanrækt alla helgina og er ég strax komin með fráhvarfsgaur. Restin af helginni fór svo í ratleik og stuð með Sæma sæta og restinni af læknisfræðinni. Við unnum! auðvitað og þökkum við slökum performans hinna liðanna. Svekkjandi. Málið var undirbúningur fyrir forvarnarstarf læknanema og fékk ég að fljóta með laugardagskveldið og fram á nótt. Ef einhver ætlar í læknisfræði.... -Góð ákvörðun! Þar til næst....

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****