26.10.02

Aaahh, hljóp nokkra kílómetra í morgun beint í ræktina þar sem mamma og pabbi voru að púla! Ha ha, þau KEYRÐU! Lífsstíll í Reykjanesbæ er að gera góða hluti...og nú höfum ég og mamma fjárfest í ágætis bakkelsi hér til að bjóða upp á í Gilinu því við erum að fá gesti! Jeij. Oddur Ísar litli frændi og rassgat með meiru mun heiðra okkur með nærveru sinni í fylgd foreldra að sjálfsögðu.
Í kveld er svo útskriftarveisla Maríu fallegu hans Dabba frænda en hún einmitt fékk 9.5 fyrir lokaritgerðina sína í hagfræði og það verður rosa veisla! Það verður æðislegt en ég stoppa stutt því miður. Upptökur á morgun!!!
Lífið er fallegt.

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****