28.10.02

Loksins loksins, upptökur byrjaðar. Ég sem sat sveitt yfir því að þetta væri ekki byrjað og ég að fara út á föstudaginn, svo mössum við hátt upp í þrjú lög á dag. Svona er að vinna með Jóni Ólafs, hann er snillingur og algjört ljúfmenni. Einnig var spennandi að hitta Valgerði Guðna, söngkonu (lærði klassískan söng í London 3.ár) í fyrsta sinn, en hún er eðalkona.
Pabbi var í Sjálfstætt Fólk í gær hjá Jóni Ársæl og var að mínu mati að brillera, sérstaklega þar sem hann sýndi þjóðinni hvernig á að rokka...en ég var samt smá spæld því venjulega fæ ég þetta beint í æð inni í stofu og það er eilítið persónulegra en neeei, best að banka upp á hjá Rúnka Júl og taka lagið! Mjög mikilvæg sena.
Ég hitti krulla í dag á bókhlöðunni, það var ánægjulegt og lífgaði upp á daginn. Ég ráfaði inn á bókhlöðuna,því Védís róni læsti sig úti..já ég er týpísk týpa með tonn af lyklum og engar skrár og Sæmundur Jón súperhetja pikkaði mig upp og "saved the day".
Afi gaf mér fisk áðan og hann var góður.
Bryndís http://www.bryndish.blogspot.com er alltaf með svo fínar myndir á síðunni sinni :) Já já, ég veit þetta "link" dæmi hjá mér er lúðalegt en batnandi konu er best að blíva.

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****