14.10.02

Gaman var á landsleik þrátt fyrir tap Íslendinga og Skotarnir fá stóran plús fyrir skemmtilegheit og ágætis móral sem smitaðist yfir á okkur fýlupúkana sem kunnum bara "Áfram Ísland" nú,eða "Kartöflugarðana...?" Hvað er málið með okkur? Við sátum þarna nokkrar hræður fyrir miðju (fyrir utan fámenna klappliðið fyrir framan) og sungum með þjóðsöngnum og öskruðum og klöppuðum á meðan á leik stóð. Hinir bara :"Dísus, hallærislegt lið...við erum svo dönnuð, það á að sitja á landsleik eins og freðýsa og borða súkkulaði og slá á lærin á sér ef manni finnst ærin ástæða til!" Riiiiight! Allavega, svo var farið á bíósýningu góða í MÍR húsinu þar sem Ari Eldjárn frumsýndi stuttmynd eftir sig; "Tindar" Það var afar ánægjuleg afþreying og fylgdi með gott partý. Rölt í bæinn, kíkt á staði, HverfisDRASL! Beið í röð í þrjú kortér með danglandi lúffur í næsta mann sem öskraði yfir allt að ég væri ólétt gella .....var ekki alveg að skilja þann brandara en ætla að mæla vambarfitu, skera af bjórdrykkju og jafnvel taka eitt clearblue próf til að sannreyna orð mannsins. Núúe, Bryndís var góð og skutlaði mér og Andreu heim á Víðimelinn þar sem Andrea fékk að gista hjá okkur. Með í bíl voru Gummi og Valur einhver...bíddu Valur? hver er það? já...hann var afar fyndinn...til að byrja með. Nóg um það. Lífið er gott. Sæti fær stóran plús fyrir uppábúið rúm fyrir næturgestinn og fyrir að vera endalaust fallegur maður. Trúts á kant.

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****