Jæja. Þetta hopp á milli Reykjavíkur og Reykjanesbæjar er komið í vana. Ég hélt það myndi aldrei gerast en nú er maður bara að "skjótast!". Ekki kálið!
Upptökur á hátíðarjólalagadömuplötu fara að hefjast og er kanil lykt og jól í loftinu hér hjá mér. Einnig er Airwaves að nálgast og ég hvet alla til að koma og horfa á Bang Gang í Iðnó á föstudeginum. Fjegur ný lög verða til hlustunar og mun Lydía (er í Verzló, söng "Út á lífið" í Wake Me Up) ljá hljómsveitinni rödd sína, Daníel Ágúst einnig, ég tek gamalt og gott og radda einnig með Lydíu. Svo mun Barði sjálfur taka lagið. Þess er gaman að geta að Valdi píanó er nú genginn til liðs við bandið en hann var einmitt einnig í Verzló og þá telur þar þrjá einstaklinga úr þessum skóla og er það afar sérstakt fyrir Barða að viðurkenna. :) Út í aðra sálma...
Ég mæli eindregið með því að Nick Cave komi að spila á Íslandi. Ég er með disk í tækinu frá Sæma sem er afar góður, LIVE m.a.s! Sami túr og hann tók þarsíðasta sumar á Hróarskeldu. Einnig vil ég fá Leonard Cohen en það er mín persónulegasta fantasía síðan ég var lítil að keyra með afa í bíl sem þá blastaði Cohen. Á endanum dó spóludruslan n.b! út eftir mikla notkun.
Ég get ekki beðið eftir að fara með Bryndísi á Airwaves "rölt!".
15.10.02
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli