17.10.02

Sólin skín, lífið er gott og ég er komin í Hvassaleitið til ömmu og afi. Afi er að kitla ömmu. Pant vera svona þegar ég verð áttræð, ó já. Eighty and loving it! Þau eru alltaf jafn kát að sjá mig og knúsa mig í bak og fyrir, ekki ósvipað og á Víðimel...hí hí. Airwaves byrjar með pompi og prakt í dag, vei vei vei, ég ætla að kíkja á hip hoppið og slamma eilítið þó það fari sjaldnast saman. Það er svona nett slamm, svona millistigs slamm sem á sér stað þegar maður hlustar á hip hop! Eða hvað? Styttist í 1.nóv en þá vil eg út! London. Elsku systir mín bíður kát, les yfir sig af lögfræði og ég mun létta hennar lund með söng og glamri! Ég hlakka svo til að sjá þau skötuhjúin. þau eru góð.
Man einhver eftir sænska eurovision laginu se på mej!?

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****