5.6.03

.....simm sala bimm

Big sis komin heim, vinnur hér í sumar hjá verðandi tengdaforeldrum sínum.

Argentínumaður einn, Guillo, var í heimsókn í nokkra daga og það er ekki frásögufærandi nema hvað! að þegar við hjúin förum á tjúttið á Vegamót þá er Svenni búinn að "týna útlendingnum" eins og það var orðað smekklega þar sem Guillo hafði reikað út af Vegamótum með magaverk. Fannst útlendingurinn síðar og seinna meir í skurði á Laugaveginum og þeir félagar tóku leigara heim. Svenni blessaður heyrir ekki endan af þessu öllu saman enda honum mikið strítt.

Kíktum í late nightcap í gær hjá Boga og Ólafíu sem eru komin með dýrindis íbúð á Hjónagörðum, annað en litla herbergið sem þau voru í og höfum við ákveðið að grilla massíft næstu helgi og halda upp á nýju híbýlin. Congrats!

Annars allt gott að frétta og vika í að ég fari til London aftur... :( snökkt.... Ef það væri ekki þessi bévítans metnaður í manni þá héldi maður sig heima fyrir og tæki læknafrúnna á þetta. Ínúú!

Punkz out

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****