....hvíld og aftur hvíld
Þessi helgi var mjööög góð. Föstudagskveld var í oggupínu glensi á Vegamótum, Laugardagskveld var ég svo á Hondunni, tók nokkur góð spor á Vegamótum og sótti svo Ljúflinginn á Prikið þar sem hann stóð í jakkafötunum, búinn á því eftir langan dag í golfi, fótbolta og veisluhöldum. Lókurinn og Hrútarnir (karlafélög úr MR) voru með gjörning og kepptu allan daginn. Lókurinn vann auðvitað (enda er Sæmi fánaberi) og var því mikið fagnað þetta kveldið.
Ég stóð þó við mína hlið á málum (kærastan sem tekur gaurinn úr vinahópnum á djamminu) og karlinn kom jú heim með elskunni sinni fyrir þrjúleytið. Svo var vaknað í fyrra lagi, sótt ömmu Sæma og brunað upp í bústað þar sem beið okkar bakkelsi hjá góðu fólki. Hulda Sóllilja (að verða eins árs (skyld mér í móðurætt) og dóttir Gumma bróður Sæma) rúsínurúlla hélt uppi stuðinu. Það var grillað, spilað, gengið á "fjöll" og skoðað svæðið. Þetta er rétt hjá Bifröst og þess má geta að bústaðurinn er nokkra metra frá Norðurá, fegurst áa. Það kitlaði eilítið að stelast í fiskinn en maður hélt aftur af sér.
Snilldarhelgi!
Hin helgu Vé
10.6.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli