22.6.03

....og hvað?

Afar athygliverð helgi er nú liðin og afar björt og tónlistarlega sinnuð vika framundan. Leeeiðinlega að vera að fara á Skelduna eftir þrjá daga !!! Það er breytt út af vananum og munum við skötuhjú fljúga með Flugleiðum og tölum ekki um annað en þægilegu sætin sem bíða okkar og complimentary dinner....það er jú ótrúlegt hvað maður saknar þess litla svona þegar maður hefur tekið Express pakkann einum of oft.

Nýjasta uppgötvunin hjá mér er sú að Beth Gibbons (Portishead) verður á Skeldunni og það er snilldin ein. Maður uppgötvar alltaf eitthvað nýtt enda ekki lííítið af böndum á þessum blessaða stað. Svo ætlum við að vera á ferðabuxunum eilítið og vera dugleg að taka lestina til Köben svona þegar þörfin sækir á mann. Frænka Sæma, Sóley nokkur er jú í verkfræðinámi úti og gott er að hafa það bak við eyrað....svona ef maður vill komast í almennilega sturtu eða slíkt.

Ring the alarm pakkinn var sem sé tekinn alla leið þessa helgina og mikið tjúttað. Guðrún Jóns útskrifaðist úr verkfræðinni og ertu ekki að greeenast með bakkelsið í þeirri veislu. Innilegar hamingjuóskir Gudda Budda! Krullinn var ljúflingur eins og ávallt og reddaði Féddu flottu dressi fyrir kveldið enda helmingurinn af fötunum mínum í kössum úti í London.
Sæti var þó veikur og tók að sér akstur í bæinn mér og Andreu til mikillar hamingju. By the way Andrea! Sko! ég er ýkt dugleg að blogga!! og hvað?

Ástin er í loftinu, það er greinilegt og lífið er ljúft.

Spunkz

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****