30.6.03

....skeldugrín

Nú er ég rúlluð inn eftir lengstu flugferð í heimi (ekki svo löng en verður lengri þegar mygla er við hönd) en bestu hátíð í geimi. Þreytan er alveg að gera vart við sig enda frekar mikið tekið á því og tjaldsvefn er aldrei mikill á svona skemmtiskralli, ó nei.
Það er svo mikið sem gerðist og gerðist ekki að það væri synd að þurfa að uppljóstra því öllu hér á blogg. Það eina sem ég get sagt er að Hróarskelda var alveg að gera sig, sólin skein, allt var í boði, maturinn suddagóður og fólkið útúr flippað og misreykt. Sitt þykir hverjum og ólíkt hafast menn að en allir lifðu í sátt og samlyndi.

Það sem að mínu mati stóð upp úr var Dave Gahan, Beth Gibbons, Outlandish, Metallica (fór þó af þeim til að kíkja á Gahan, sá ekki eftir því) og síðast en ekki síst Sigur Rós. Þar inn á milli voru alls kyns áhugaverðar sveitir, blakkeppnir, karfa og annað slíkt sem hressir og kætir. Björk mátti alveg eiga sig því sunnudagsmorgun fór að rigna og við gáfum s.. í þetta og tókum næstu lest í bæinn þar sem á móti okkur tók Sóley frænka Sæma sem býr þar með familíunni. Það var heit sturta og ljúfur sófi. Svo tók hún sig til og bakaði köku í þokkabót. Algjör snilld. Við tókum TIVOLI auðvitað með stæl þrátt fyrir afar slappa Skeldumaga og gistum svo í húsakynnum Sóleyjar og Þórmundar.

Allt í allt hin besta skemmtan og svo erum við svo sniðug að ég kom heim á undan og sæki Sæta bara í kvöld. Nú í þessum töluðu orðum stendur hann á Ströget og hefur laumað sér í súkkulaðistöng ef ég þekki hann rétt.

Nú taka bara við upptökur og læti. Ég sé fram á skemmtilegt sumar!

Fédda Fönk

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****