Þetta nýja fyrirkomulag á þessu bloggi er ekki að mínu skapi, allt í rugli og ekki svona beinlínis fyrir tölvugúru eins og mig, ínú, að eiga við.
En frá mér er það að segja að.....hmmm...það er nú mest lítið sem á daga mína hefur drifið. Þeir líða afskaplega hægt og ég í rauninni get ekki beðið eftir haustinu og alvöru stúdíóvinnu. Það er eitthvað svo gott við haustið, fer að kólna og maður getur farið að hygge sig í upphituðum híbýlum Íslands. Skil ekki hvaða fár þetta er með sólina og sumarið. Jú, af hinu góða, en hver þarf sveitta sundskýlustemmningu í Nauthólsvík þegar það er hægt að hafa það kósý bak við læstar dyr.
Helgin er pakkfull af alls kyns kynderíi, held ég skelli mér í málningargallann og máli bæinn rauðan. Pjöllukveld á morgun hjá Andreu og saumó á laugardaginn hjá Bergþóru! Jeij....
Ég fæ að passa Huldu Sóllilju súperdúllu á morgun OG á mánudaginn, ég er ekkert smá lækker frænka.
punkzout
18.7.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli