skeinimeistarinn mættur....
Já, það fer ekki milli mála, ég ætla aftur á Grund! Ég byrja 17.ágúst og ætla að taka mér svona mánuð til að byrja með. Deildarstjórinn rak upp stór augu er ég mætti á svæðið í pinnahælunum og með eyrnalokka lengri en það lengsta....(nota bene, ekki alveg umhverfisvænt outfit á Grund) en hún var afskaplega fegin að sjá mig aftur enda vantar alltaf starfsfólk. Ótrúlegt, ég hef þrautseigju í að hugsa um gamalt, gleymið fólk, vera í kúkableyjunum og slíku og tek það fram yfir alla aðra vinnu sem býðst. Ég held að ég sé þolinmóð manneskja... nú eller hvad!
Brindisi og Gummster mæta í kveld í ekkert minna en humar í forrétt og kjúllamann í aðalgaur. Sæmundur sem kenndur er við góðmennsku og snilldartakta í eldhúsinu hefur verið að slíta sér út í vinnunni, ínú, liggjandi í sólbaði og sundi alla daga með litla sæta krakka í eftirdragi og því er um að gera að taka sér smá breik frá norminu og lyfta sér upp með góðu fólki en Bryndís og Guðmundur eru jú afbragðsfólk. Þess má geta að afi minn og litli bróðir heita Guðmundur og svo heitir móðir mín Bryndís og Bryndís mun vera nafnið á minni fyrstu stelpu (sem er ógetin enn). Skemmtileg blanda það.
Ýmislegt er á döfinni í tónlistarmálum, aðallega þó það að ég er að flýja poppdúkkuímyndina sem höfuðstöðvar vilja endilega troða á mig og ég er staðráðin í því að fara bara í rokkið. Ínú. En það verður ekki hjá því komist að London kallar og ég þarf að fara að tygja mig....en ég er ferlega hrædd við að fara frá Klakanum aftur. :(
Annað og ennþá meira er á döfinni í skólamálum hjá mér en ég upplýsi ekki fyrr en ákvörðun er tekin.
Einn fyrir Gorbatsjov og tveir fyrir mömmu hans,
Spunkmaster
31.7.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli