......jesus Bobby!
JA hérna. Verzlunarmannahelgin var yndisleg, fór með spúsanum og fjölskyldu hans upp í Sumó sem er í Borgarfirði og rennur jú Norðurá full af laxi nokkra metra frá honum. Það var dansað, spilað, hlegið, bilað, skransað, vegið og sanserað. Sólríkt var jú, eins og um allt land og var ekki laust við að Vedder og tilvonandi (vonandi?) tengdó beruðu sig úti á palli, löðrandi í olíu og öðru slíku sem tilheyrir. SVo bauð Geirmundur Valtýs í létta sveiflu í Hreddanum þar sem við tjúttuðum ögn en sökum mikils hláturs urðum við að snúa til baka og skilja eldri kynslóðina eftir í þeirri sveiflu sem (fyrir hinn heilvita mann) var ekki svo lækker. Svo lauk helginni ósköp rólega í faðmi Sæta og hans blóðvina.
Spjallaði létt við Krullann og Siggu sætu sem er jú móðir hins títtnefnda Krulla. Hún er einmitt alltaf svo lækker að Bryndís móðir mín vill ekki eiga viðskipti né samskipti við neinn annan innan Flugleiða og ef eitthvað á að skella sér út þá er það bara Sigga og svo er hoppað upp í vél. Þetta var í sólinni á Austurvelli.
Hitti Rakel Sif (Rocky) einnig þennan sólríka dag og við sátum úti við Thorvaldsen og helltum okkur í vitsmunalegar samræður. Síðan kom Sæti maðurinn og tyllti sér og sú tylla varð síðar að kvöldverði á sama stað.
Ég s.s. hitti mikið af fólki. Rosa hress og hittigjörn.
Mikið hefur verið spekúlerað í næsta vetri og eiga eflaust margir eftir að lyfta brúnum við ný tíðindi sem eru á skjön við allt sem maður á að vera, gera og hafa fyrir stafni. I'm gonna spill it later!
Grund byrjar á mánudaginn, viku fyrr en áætlað var og er ég hoppandi kát yfir því enda er ég ekki yfirskeinimeistari fyrir ekki neitt. Svo mun ég gera risa grein í Moggann um þessa lífsreynslu mína og vekja menn til umhugsunar um ellimálin og jafnvel fiska eftir fleiri ungu fólki eins og mér til að henda sér út í þetta.
Ég er boðin í fisk hjá afa en ég hef unnið myrkranna á milli við að vélrita fyrir karlinn og er þetta orðið ansi myndarlegt safn hjá okkur. Ættfræðin er að springa hér í Hvassaleitinu. Spúsinn joinar okkur von bráðar og svo er það gisting í Reykjanesbæ í kveld.
Lil'V (ég hef tekið þetta nafn í notkun, fleiri upplýsingar um tónlistarferil minn og stefnur í lífinu er að finna á www.lilvgonnaspankurass.com)
7.8.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli