....make the juletime gay!
..1.desember á morgun og ég býst við algerri sprengingu. Fyrst nóvember er svona þá veit ég ekki hvernig desarinn verður....
Helgin var mjög góð, myndatökur fyrir jólatónleikana voru í gær og verður þetta svona Walt Disney fílingur yfir myndunum, fallegt og jólalegt. Sammi tjáði okkur dívunum það að hver og ein fengi tíu strætóskýli... Sumar dívur flippuðu og ég hló. Það er ekkert að því að vera á strætóskýlum... erum við ekki að reyna að selja inn á tónleika hérna??? Eller.....
Án alls gríns, allir verða að skella sér á þessa tónleika. Þeir verða í Grafarvogskirkju 18. og 19. desember og megin þemað er gömul íslensk jólalög, þessi gömlu góðu. Svo inn á milli koma smellir frá Frostrósum í fyrra. Margrét Eir, Veddarinn sjálfur, Guðrún Árný, Ragnheiður Gröndal og Eivör Pálsdóttir. Gestasöngvarar verða Garðar Cortez og Maríus sem er einmitt sonur Margrétar Pálma sem var kórstjórinn minn lengi vel í gamla daga. Hann hefur verið í útlandinu lengi að læra söng og held ég að þetta verði algjör sprengja. Það er allavega yndislegt að taka þátt í svona uppfærslu og gefur jólunum aukið gildi.
Rakel bauð mér í mat á föstudaginn og var það algjör snilld. Hún eldaði upp úr Grænum Kosti, svona hnetusteik með sveppasósu... yndislegt. Svo var kanadísk frænka hennar þar einnig og Krullinn kom og joinaði okkur. Svo endaði þetta með skralli í bænum......sem var nú ekki síðra.
Laugardagskveldið fór í afslöppun hjá Jóhönnu og "catching up" og Krullinn var mættur enn á ný og það var bara spólukvöld og snakk.
Nú er svo heimkomukaffiboð í Reykjanesbæ þar sem afi og amma voru að koma frá Kanarí. Það er bakkelsi og familían er að búnka sér saman smátt og smátt. Þau eru ótrúlega brún og ánægð með ferðina sína. Fyrir utan það að gamla fólkið úti á Kanarí sakaði afa um að vera óvirkur alkóhólisti því hann smakkar það ekki blessaður.
Svo verður desember pakkaður í jólatónleikum og æfingum og öllu því sem tilheyrir. Ég vona að allir plummi sig vel í geðveikinni og ég mun segja reglulega frá minni.
Lille bror er kominn með blogg, hvet ykkur til að kíkja, hann er engill af himnum ofan.
Punkzout
30.11.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli