28.11.03

...á Klakanum!

Hvað er málið með jólagleðina hérna??? Það er eins og Ísland hafi tekið að sér að vera með all year round jólagleði. Desember er ekki einu sinni kominn. Æ, ég er nú svo mikið jólabarn, get svo sem ekki kvartað.

...held ég hafi aldrei verið eins stolt af landi mínu eins og þegar við flugum yfir bólstruðum skýjum og sólin var að setjast yfir landinu. Fólkið var "amazed", kanarnir alveg að tapa sér.

Ótrúlega fallegt veður, ég horfi hérna yfir til Reykjavíkur úr eldhúsglugganum. Bærinn er skreyttur í anda jóla og ég er búin að ákveða það að vera hressa týpan í dag og svei mér þá, bara allan desember.

Rakel mín er svo búin að bjóða mér í matarveislu í kveld... eitthvað upp úr grænum kosti því kanadíska frænka hennar er með ofnæmi eða slíkt....en hún mun einnig sækja þetta boð. Get ekki beðið eftir að knúsa dúlluna mína.

Svo á ég eftir að knúsa Krullann minn líka!!!

Úff, knúserí dauðans, hér á dagskrá.

Punkzout

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****