....the juletime 2003 is gay!
Ótrúlegt hvað tíminn líður, helgin allt í einu búin og vikan tekur við....sama vikan og síðast. Og svo einu sinni enn... ground hog day.
Ég er búin að gera svo ótal margt...klára jólakortin,æfa æfa æfa og ég held að baksturinn sé það eina sem eftir er. Mmm... yndislegar súkkulaðismákökur,ég sé þetta í hyllingum. Svo fá vel valdir körfu með smákökum sem fylgir jólakortinu. Jújú..jólaskapið er komið, fer ekki framhjá neinum.
....skellti mér í bíó með Rakel Sif...-love actually- var einmitt afskaplega hugljúf og góð. Ekta jólamynd. Fyrir PÖR! Djísus...fær einhleyp stúlka ekki frið? Af hverju snýst allt um ást og rómantík. Ugggh! Svo kom ég heim og knúsaði bræður mína sem sofa rótt og róaðist við að heyra pabba kalla mig "litlu dúlluna sína". Maður lætur sér það nægja svona í bili.
Mottó dagsins: Love sucks a fat fish!
Pönkarinn
9.12.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli