.....ch..ch..ch..ch..changes!
Gavöööð! Hvað þetta er lækker! Nýtt og betra útlit hér á síðu minni með glimmerdæmi þegar músin klikkar og slíkt. Gummi Jóh (sem er einmitt tengdur mér hér að ofan) sá um að hjálpa dömunni og ekki lítið. Þakkir skulu honum færðar hér í kjölfarið.
Ég bakaði heilan helling í dag og gerði mannskapinn glaðan. Jólatónlist hefur ómað hér og ekki laust við að maður góli með. Unglingsstrákar stóðu mig að því að góla við baksturinn og stóðu þeir hér fyrir utan gluggann að virða þetta fyrir sér. Ég varð ekki vör við þetta fyrr en síðar og seinna meir. Var það þá um seinan og ekki hægt að bjarga ærunni úr því. Mikið var hlegið að "gömlu konunni" en þeir hefðu nú ekki hlegið ef þeir fengju að smakka smákökur mínar fyrir óþekku börnin drengirnir þeir arna.
Ég er ennþá að jafna mig eftir -love actually- bíómyndina.... því það er boðskapur í henni sem upphefur hið brostna hjarta. Færir manni von jafnvel og tilgang. Eeeeeinmitt! Annað eins rugl.... Ég er kannski svona Grinch ástarinnar þessi jól. "People-get over it!" kalla ég úr helli mínum niður til byggða.
En svona í alvöru talað. Ég vona að þeir sem eiga hinn eina sanna ástvin þarna úti, njóti þess og kunni að meta það því lífið er vandmeðfarið svo og fólkið sjálft.
Grinch
10.12.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli