11.12.03

....stelpur...get a hint!

Móðir mín er farin að gera mér grikk og sækja síðuna mína heim. Ég mun því snúa vörn í sókn (eins og er jú svo vinsælt þessa dagana) og gera eins og hún segir mér.

Undanfarna daga hef ég þjáðst af kvefi og pest. Ég hef dælt í mig vítamínum,lýsi,hvítlaukstöflum og ólífulaufum til að ráðast á þessa pest. Ég vona svo innilega að þetta hafi eitthvað að segja því það versta sem ég veit er að hanga í svona pakka og geta ekki farið út að asnast í snjónum. .....nema að einhver freisti mín með einni feitri dvd á kantinn eða tveimur.... þá get ég alveg skoðað það að ílengja veikindi mín. Stelpur! Get a hint!

Fór á körfuboltaleikinn áðan, Keflavík gegn Frökkum. Hreint magnaður leikur, seinni hálfleikurinn hélt manni á sætisbrúninni og þeir unnu þetta blessaðir drengirnir með tja,átta stiga mun að mig minnir. Til hamingju Keflavík! Hefði þó viljað sjá Jonna meira inná... fá meira "fútt" í 'etta.

Æfingar eru jú á fullu og merkilegt hvað það er allt á þvers og kurs...textahöfundar gera texta við vitlaust lag o.s.frv. Tilheyrir jólunum kannski. Mér finnst þetta fyndið á meðan allir hjá 1001nótt svitna yfir tölvunum sínum og gemsunum í fallega húsnæði sínu við Suðurlandsbraut.

Foreldrar fara svo til London yfir helgina og ég býð í pottapartý hér í Gilinu öllum þeim sem þora....ínú.. eeeeinmitt! Ég mun hafa "auga" með bræðrum mínum á meðan og drukkna í æfingum þessa helgina. Teiti og gleðskapur er það síðasta á dagskrá.
....nema að einhver freisti mín með "úúú úúú ííí"....stelpur, "GET A HINT!"

Ísland í bítið á föstudagsmorgninum... mæli með því :)

Frostrósin

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****