11.12.03

....þessi tími ársins!

Það er ólýsanlega gaman á jólunum. Þetta þriggja daga ferli.

Þorláksmessa -stórmatarboð hjá ömmu og afa í Sóltúni þar sem föðurættin kemur saman og yngri kynslóðin sér um skemmtiatriði -svo er rölt niður Laugaveginn með fjölskyldunni,klárað síðustu gjafakaup og tjattað á kaffihúsi með heitt kakó. Svo er haldið heim þar sem allir skreyta jólatréð saman -nú þegar allir eru komnir á almennilegan aldur þarf ekki að halda aftur af bræðrum mínum sem vildu oft klína tréð út í súkkulaði og klósettpappír-

Aðfangadagur -tilhlökkunin að drrrepa mann, hátíðarandi yfir öllu og síðasti séns að skila af sér og taka við gjöfum...loks slær klukkan 18.00 og það er venjan hjá minni fjölskyldu að fara í kirkju (klikkar ekki), venjulega höfum við farið í Hallgrímskirkju þar sem Hamrahlíðarkór hefur sungið en þetta árið verður það líklega Keflavíkurkirkja. Örugglega ekki síðra. Það að fara í kirkju er mikilvægt fyrir mér. Ég er trúuð en fer ekki oft í kirkju,kýs að hanga yfir hljóðri bæn í heimahúsi fremur en að taka mig til og sitja undir messum. Ég finn þetta samt breytast í mér frá ári til árs. Að fara í kirkju á þessum degi finnst mér vera algjör snilld. Ef ekki bara til að hlýða á fallegan söng, þá til að heyra boðskap jólanna frá einhverjum sem virkilega trúir og í sannfæringu sinni leiðir flesta á sömu braut. Ef ekki bara á jólunum, þá alltaf.

Eftir kirkju er svo haldið heim þar sem Hamborgarhryggurinn hefur legið í fitu sinni lengi vel í ofninum svo að húsið ilmar. Þá taka sig allir til, brúna kartöflur og gera ávaxtasalatið. Pabbi sér alltaf um sósuna og hefur enn ekki sagt okkur leyniuppskriftina....ég er viss um að það er afskaplega einfalt en við leyfum honum að halda virðingu sinni. Það eru nú einu sinni jól.

Forrétturinn hjá okkur hefur í áranna raðir verið Ris a'la monde...danskur grjónaréttur að mig minnir með sultu. Hefðin ein gerir forréttinn góðan og svo er alltaf falin mandla í einum diskanna og sá sem fær möndluna má ekki segja fyrr en allir hafa lokið við að borða. Út frá þessum sið hafa svo sprottið upp bestu leiktilþrif sögunnar og held ég að amma Hervör eigi vinninginn svona lítandi til baka. -Það er bara eitthvað svo heillandi við það að sjá gamla konu sem þykist vera með eitthvað uppi í munninum.- Sá hinn sami fær svo verðlaun sem hafa nær oftast verið súkkulaðikyns. Svo er það aðalrétturinn með öllu tilheyrandi og eftirrétturinn. Ah..eftirrétturinn. Mamma og pabbi hafa oftast tekið sig til og eytt góðum desemberdegi í að gera jólaís saman. Með þessu er svo heit eplabaka að hætti ömmu minnar í föðurætt og bráðnar þetta í munninum.

Þess má þó geta að eftirrétturinn er ekki snæddur fyrr en í hálfleik á pakkaleiknum. Allir koma sér fyrir inn í stofu eftir aðalréttinn og kóngur heimilisins kemur sér í stellingar. Áður fyrr var það alltaf sami stóllinn sem pabbi sat í og stjórnaði pakkaleiknum. Svo fóru tískumógúlar úti í heimi að stjórna haus móður minnar og lazy boy ofurhægindastóllinn var látinn fjúka. Nú er pabbi kominn á gólfið í pakkaflóð og er að ég held nokkuð sáttur við sitt hlutskipti svo lengi sem frúin er ánægð með nýja sófasettið og þar af leiðandi viðmótsþýðari. Pabbi sem sagt sér um jólapakkaleikinn sem fer þannig fram að bræður mínir tveir skiptast á að loka augunum og vaða í pakkaflóðið undir trénu. Þar velja þeir af handahófi einn pakka og færa hann svo kónginum.-þeir eru þó ávallt búnir að grandskoða staðsetningu sinna gjafa og það kemur aldrei á óvart þegar fyrstu gjafirnar eru þeirra- Kóngurinn les svo jólakortið sem fylgir og í kjölfarið vita allir hver á að fá pakkann. Þetta hefur oft reynst mér og systur minni vandræðalegt þar sem ástarjátningar á jólakortum eru tíðar frá kærustunum. Svo fær viðkomandi sinn pakka og allir bíða og sjá hvað leynist í honum.

Í jólapakkahálfleik er eftirrétturinn snæddur með kaffi og öllu tilheyrandi og megnið af jólakonfektinu tekið upp. Svo hefjast leikar á ný ........

Jóladagur -stórmatarboð hjá ömmu og afa í Hvassaleiti þar sem móðurættin kemur saman. Alltaf sama yndislega verkaða lambið sem amma gerir af svo mikilli alúð að það hefur aldrei klikkað. Malt og appelsín -besta blanda á þessari jörð- flæðir svo í tonnatali og maður finnur að maður er tilbúinn í suddalegt tjútt á annan í jólum.

Gleðileg jól dýrin mín!

Veddarinn

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****