....julejulejul!
Þorláksmessa var ágæt... aðallega skutlað gjöfum og jólakonfekti í fólk. Svo var hápunkturinn auðvitað hangikjötið hjá ömmu og afa í Sóltúni. Þar vorum við öll saman komin, átum,spjölluðum og spiluðum bingó. Ég hefði átt að vinna eitthvað því ég hef ekkert verið sérstaklega heppin í ástum :) svo að eitthvað hlýtur maður að fá fyrir sinn snúð! En neeei, draumaprinsinn hlýtur að vera á næsta leiti því ég vann ekki boffs. Eða bara kominn og farinn.... "blessaaaar..."
Nú er orðið ansi jólalegt í Heiðargilinu. Við systur vorum svo lengi á leiðinni til baka úr Reykjavík að beðið var með að skreyta trégreyið þangað til á morgun. Pabbi sefur eins og ungabarn elsku karlinn...búið að dæla í hann vítamínskömmtunum því hann er svo lasinn. Svo er mamma eitthvað óróleg að leggja á borð hér í stofunni.
Ég ætlaði að gera panna cotta núna fyrir eftirréttinn á morgun en ég held ég verði bara að bíða með það því ég er "knackered" eins og maður segir á góðri bresku.
Svo ætla ég að vera dugleg að taka myndir hér á jólunum til að skella á Veddarann... þetta verður eitthvað skrautlegt.
sKvís
24.12.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli