...Ísland í bítið!
Ég skil ekkert í mér... ég vakna hér hálfsex í morgun algjörlega stjörf og góni út í loftið. Einhverjum andvökuhugsunum síðar er blaðinu skutlað inn um lúguna.
Ég gat ekki séð á eftir pabba svona veikum í vinnuna svo að ég fann mig knúna til að vakna og undirbúa vítamínskammtinn og bakkelsi fyrir dedda. Held ég sé með samvisku á við fíl.
Svo finnst mér endilega eins og ég hafi ekki klárað að kaupa jólagjafirnar og ég er hálf vönkuð yfir því að ætla að gera panna cotta í eftirrétt á morgun. Móral yfir því að vilja kíkja í miðbæ Reykjavíkur í kveld því að pabbi "ætlar sko að vera hér í Reykjanesbæ og rölta Hafnargötuna enda ekkert smá búið að vinna í henni!"....og algjörlega með skrifræpu miðað við þennan tíma dags...
...ef maður segir ekki jesus bobby núna þá veit ég ekki hvunær.
StrezzedOUT
23.12.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli