...Krullinn fær skjól yfir höfuð!
Þá er það staðfest! Bryndís hin fagra hefur nú skrifað undir leigusamning hjá stúdentagörðunum. Eggertsgatan kemur sterk inn og mun ég leggja leið mína reglulega til hennar þegar ég kem á Klakann á næsta ári. Ágætis ástæða það til að hverfa af senunni í London.
Bryndís mín, þú ert falleg. Til hamingju elsku KrullI!
Amma og afi munu njóta jólanna með okkur þetta árið að venju og það er staðfest að við förum í Keflavíkurkirkju klukkan 18.00. Ég hlakka mikið til að heyra Heims um ból óma þegar við göngum úr kirkjunni á leið í hrygginn og pakkagleðina.
Nú hef ég pakkað flestu inn og búið til konfekt gjafakörfur....endalaust hægt að dunda sér í slíku. Hér fyrir ofan er s.s. yfirlitsmynd yfir konfektið góða sem við möndluðum saman hér mæðgur.
Hlýtt bólið kallar nafn mitt og góð systir sefur í því núna. Við erum hérna prinsessurnar í Heiðargilinu og höfum aftur tekið við stjórninni. Dekurdúllurnar... eins og pabbi segir alltaf. Mér finnst við samt svo harðar gellur. Í harkinu í London alla daga.
Skvettan

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli