....annar í sudda!
Nú er búið að troða í sig allverulega en ég kemst þó enn í kjólinn svo að ég ætla að nýta tækifærið áður en lendarnar fara að stækka mikið meira og heilsa upp á dj Margeir í kveld.
Ekki er sögunni þó lokið þar því meira gaman verður á morgun á kjallara Þjóðleikhúss þar sem Svanhvít Friðriks er búin að bjóða okkur systrum í rolluveislu a.k.a. gamlir MR-ingar í fagnaðarham. Ég mun mæta í dulargervi MR-ings og vona ég að enginn uppgötvi Verzlingstaktana í mér. Þeir eru nefnilega allsterkir á stundum.
Jólin hafa verið mér afskaplega góð og fékk ég ótal margt skemmtilegt og hagnýtt. Það sem stendur upp úr er kremaflóðið og geisladiskar þrír; Bang Gang-Something Wrong; Margrét Eir-Andartak og síðast en eigi síst Eva Cassidy með American Tune. Músík er það besta sem ég fæ. Ég er á móti því að hlaða þessu inn frá netinu því ef fólk vill njóta tónlistar mikið meira í framtíðinni þá á að styrkja svona kvikindi eins og sjálfa mig. Annars þurfum við öll að fá okkur illa launað aukastarf sem dregur úr tónlistarinnblæstri og þar af leiðandi munuð þið væntanlega hlusta á eyrnamerg í framhaldinu.
Innblástursinnskot: Það er til fólk sem lætur hluti gerast, fólk sem horfir á hluti gerast og svo fólk sem veltir því fyrir sér "hvað gerðist?" Ég ætla að flokkast undir fyrsta hópinn. ....allavega í kveld :)
26.12.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli