27.12.03

....þú komst með jólin til mín...til mín...til míííín!

Jesus Bobby! Give it a rest! Jólalögin eru að gera mig gjuuðveika.

Ég vil bara heyra dj sóley eða robba í kveld takk!..... svo líður annað ár og mann fer að þyrsta í jólalögin aftur.

Já, það er kjallari Þjóðleikhúss...rolludjamm. Ég verð eins og úlfur í sauðahjörð.....grrrrr!

Þær gleðifréttir hafa borist í hús að Victor fór á annað kné á aðfangadagskveld fyrir framan Rakel sína og tjáði henni ást sína og bað hana um að vera konan sín alltaf. Mín ástkæra Rakel Sif ber nú gullhring á fingri....en ég hef ekki séð gripinn enn. Hlakka til! Innilegar hamingjuóskir til ykkar elskurnar mínar, ég er viss um að þið blómstrið og dafnið vel saman.

Ég ætla að syngja "tell me tell me tell me come on Victoooor, you're my loooverrr!" í kirkjunni. ...óumbeðin auðvitað

Ég er að fylgjast með Opruh þætti hér með öðru auganu og ég held barasta að ég fari að skæla bráðum. 17 ára dvergstrákur er að fara í hættulega aðgerð...... hann fór á lokaskólaballið með sætri stelpu á limmósínu. úff

Innblástursinnskot: Þegar örlögin loka dyrunum, farðu þá inn um gluggann.



0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****