.......og árið 2003 fór í ???
Það er ekkert smá einkennilegt að hugsa til þess að nýtt ár er að ganga í garð. Mér finnst ég ekki hafa áorkað miklu þetta árið 2003 en stjörnuspár og annað slíkt segja mér að 2004 verði allverulega öðruvísi....marki tímamót og komi með öðruvísi innblástur en áður.
Ég hlakka til nýja ársins og finn strax á mér að nú verði hlutirnir öðruvísi, bjartari og betri. Fjölskyldan í heild sinni og einstaklingar í henni hafa mátt þola mikið þetta árið og held ég barasta að við séum með óbilandi þrek og endalausan styrk. Fyndið hvað maður verður hugaðri og smeykari í senn þegar maður nær rétt yfir tvítugt. Ég er orðin svo lífhrædd...hrædd við að fljúga,keyra og allt sem hreyfist liggur við en finnst samt eins og ég geti gert allt sem mig langar til. Tækifærin eru jú óþrjótandi í þessum heimi.... maður þarf bara að hlaupa af stað og grípa þau.
Gærkveldið kom verulega á óvart á margan hátt og held ég að ég sé nokkuð sátt við framgang mála. Besti frasinn var þó Kani einn sem hefur greinilega stúderað uppálöpp línurnar: "Are you from Tennessee? ....cuz you're the only ten I see!" Ég gat ekki annað en hlegið og gefið honum hrós fyrir frumleika.
Þjóðleikhúskjallarinn bauð upp á mikið pláss og góða tónlist (Gullfoss og Geysi) og svo var farið á þetta venjulega skrall; vegamót;kaffibarinn;prikið! Ekki leiðinlegt það heldur. Svo flaug ég heim undir verndarvæng Krullans míns sem var svo yndisleg að bjóða mér gistingu. Við gátum um margt rabbað vinkonurnar og smá svona gamall "sleep over" fílingur í loftinu.
Nú er svo verið að tygja sig fyrir Hringadróttinsspilið en við fjölskyldan ætlum að ganga í þetta og taka það með trompi. Engar smá leiðbeiningar sem þarf fyrst að lesa en eina vitið er að spila spilið og þá kemur þetta hægt og bítandi. Ég á reyndar eftir að fara á myndina....hef beðið lengi eftir henni og langar því endilega að gera þetta almennilega, í besta salnum með feitan popppoka og kók. Eitthvað alvöru. Svo er ekki verra að hafa einhvern til að kreista þegar maður verður hræddur við Gollum (svona þegar hann fer að segja "my precious") og hef ég beðið systur mína kæru um að vera mér til halds og trausts.
Svo erum ég og mamma að ljúka við að gera brauðbollur því okkar ástkæra frændfólk flýgur inn á Klakann í fyrramálið. Þau hafa verið búsett í U.S.A. og ætla að vera hér yfir áramótin. Það verður s.s. morgunkaffi í Heiðargilinu.... ekki það að ég nenni virkilega að vakna í þetta blessaða kaffiboð en maður lætur sig hafa það. Dugleg!
Ég þarf reyndar að skella mér í heita pottinn því ég er með útjaskaðan líkama eftir öll erfiðu danssporin í gær. Ekki lítið verið að taka á því. Siffi bró verður svo góður að undirbúa pottinn og ætlum við að henda einum eða tveimur sjampóflöskum ofan í svo að það verði allt út í sápukúlum og þá gerir maður svona sápukúlusnjóhús.... æ, þetta er meira svona "þú verður að vera á staðnum" gjörningur.
Innblástursinnskot: If you're headed in the wrong direction, God allows U-turns.
28.12.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli