.....þú snýrð mér hring hring hring eftir hring eins og geisladiskur hring hring hring hring!
Ég fékk tarot spil í jólagjöf og nú þegar nýtt ár er að ganga í garð þá hef ég ákveðið að vera spákona þessa dagana. Mamma vill endilega að ég taki mig til og læri á þessi spil svo að við getum öll skyggnst inn í framtíðina. Allt er þetta að gamni gert auðvitað og varla mikil alvara í þessu þó að ég sé orðin ískyggilega trúuð á stjörnurnar!
Panna Cottað var látið bíða þangað til á gamlárskveld og er ég að undirbúa gjörninginn svona í huganum. Komin með hráefnið...vantar bara réttu músíkina til að spila meðan ég undirbý réttinn. Mjög mikilvægt að hafa réttan anda þegar svona er gert.
Ég hef ákveðið það að vera ekkert að stressa mig á gamlárskveldi, ánægð að geta verið með fjölskyldu og vinum og er ekkert sérstaklega að sækjast eftir því að tjútta með fólki sem ég þekki ekki boffs og vill bara troða á löppum hvers annars. I'll pass. Læt þetta bara ráðast þegar að því kemur. Áætlanir eru lélegar á slíkum kvöldum. Bjarta brosið og blómaskapið verður að vera nóg.
Innblástursinnskot: Heppni er það sem gerist þegar undirbúningur mætir tækifærinu!
29.12.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli